Aukakennarar
17.11.11. - Hlynur Ólafsson
Kæru laganemar, nú fer að styttast í jólapróf og flestir farnir að huga að prófaundirbúningi. Í slíkum undirbúningi getur verið gott að hafa einhvern reyndari sér við hlið sem getur veitt manni aðstoð við námsefnið.
Hér til vinstri hefur bæst við nýr hlekkur: "Aukakennarar". Þar er að finna yfirlit yfir öll námskeið sem kennd eru í grunnnáminu skólaárið 2011-2012. Fyrir neðan fögin eru nöfn fólks sem hefur tekið námskeiðin og er tilbúið til þess að miðla af reynslu sinni.
Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér aukakennslu er bent á að hafa samband við þá aðila sem listaðir eru við viðeigandi fög. Aukakennararnir eru sjálfir nemendur sem einnig eru uppteknir í námi og því er afar vel séð að panta tíma með góðum fyrirvara. Hver og einn kennari setur sér sitt verð og skiptir Lögrétta sér ekkert af því.
Þeir sem hafa áhuga á því að gerast aukakennarar er bent á að hafa samband í gegnum netfangið hlynur at logretta.is. Þær kröfur eru gerðar til aukakennara að þeir séu með 1. einkunn í meðaleinkunn.
