Golfmót Lögréttu
Skrifað af: Gunnar Ingi Ágústsson
|
05. September 2010
Golfmót Lögréttu 2010
Hið árlega Golfmót Lögréttu fer fram föstudaginn 10. september n.k. kl. 15:00 í Mýrinni hjá GKG. Um er að ræða skemmtilegan 9 holu völl sem er staðsettur í Vetrarmýrinni í Garðabæ.
Spilaðar verða 9 holur eftir hinu svokallaða "texas scramble" leikkerfi. Í grófum dráttum gengur kerfið útá að tveir eru saman í liði og slá þeir báðir frá teig. Betra högg þeirra verður fyrir valinu. Því næst slá þeir báðir frá þeim stað þar sem betri boltinn liggur og svo koll af kolli þar til kúlan er komin ofaní holuna.
Leikið verður eftir forgjöf.
Tvö lið verða ræst út í einu frá kl. 15:00 til 16:20 með 10 mínútna millibili.
Þátttökugjald á mótið er kr. 2.000 fyrir greiðandi meðlimi Lögréttu. Aðrir greiða kr. 3.000. Keppendur eru beðnir um að mæta með reiðufé þar sem ekki verður posi á staðnum.
Greiðandi meðlimir Lögréttu hafa forgang á mótið. Fyrir þá sem ekki hafa þegar greitt félagsgjöldin nú þegar þá er hægt að gera það í heimabanka og á greiðsluseðill þegar að hafa birtst í heimabankanum.
Skráning er á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Þar þurfa koma fram upplýsingar um nafn, kennitölu og forgjöf. Ef spilarar eru stakir (ekki með liðsfélaga) verður einstaklingum raðað saman þegar skráningu lýkur. Afar mikilvægt er að keppendur hafi sent inn skráningu í allra síðasta lagi fyrir kl. 14:00 á þriðjudaginn 7. september n.k.!
Glæsileg verðlaun verða í boði fyrir sigurvegara mótsins. Þá er vel séð að keppendur séu vel til fara en frumleiki í klæðarburði gefur tilverunni lit.
Um kvöldið verður árangri dagsins fagnað með pompi og prakt, staðsetning nánar auglýst síðar.
Golf tournament - Lögrétta 2010
The yearly Golf tournament will be next Friday, 10. September 2010 in Garðabær. It will start at 15:00.
The setup is „texas scramble“.
Participation fee is kr. 2000,- for members of Lögrétta, but kr. 3000 for others. Players are asked to pay in cash when they show up. No creditcards.
Registration is via email -
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
before 14.00 o‘clock on next Tuesday, 7. September. Players need to send info about their names and ID number.
Magnificent award for the winners.
At the evening will be a party for everybody. Location will be posted later.
Stjórnin