Tuborg útilegan

Hin árlega TUBORG útilega verður haldin um helgina á Álfaskeiði!

Sala miða verður í hádeginu í dag og á morgun, kostar litlar 1500kr, þið vitið hvað er innifalið ;)

Rútur frá Sólinni klukkan 17.00, rútur heim um 11.00 á laugardag !

Green_Logo

 

Stjórnin

Sumarkokteill Lögréttu

Lögrétta heldur hinn árlega sumarkokteil annað kvöld á Kjarvalsstöðum!

Kokteillinn byrjar klukkan 17:30 og stendur til 19:30. Boðið verður uppá veigar og léttar veitingar.

Nýnemar eru sérstaklega boðnir velkomnir á þennan fyrsta atburð Lögréttu, en það kostar 500 kr inn fyrir eldri nemendur.

Það er spáð dúndurblíðu og því hvetjum við alla til að mæta og fagna upphafi vetursins með okkur!phoca_thumb_l_147

Kveðja

Stjórn Lögréttu

Nýnemadagar

Nýnemadagar verða haldnir í HR 17. og 18. ágúst næstkomandi. Lögrétta hvetur alla nýnema til að mæta á dagana, kynnast skólanum, okkur og eiga góðan dag :)

Dagskráin hefst 8:45 þann 17. Sjáumst!

Dagskrána má finna hér

Stjórnin

Skiptibókamarkaður

Átt þú bók frá fyrri árum sem er ekki í notkun? Vantar þig nýjar bækur fyrir næsta skólaár?

Lögrétta hefur opnað umræðuþráð á Facebook síðunni sinni, þar sem nemendur geta keypt og selt bækurnar sínar, endilega kíkið á það.

Lögrétta bendir ykkur einnig á síðuna www.skiptibokamarkadur.is, þar sem allir geta selt og keypt bækur.

 

Stjórnin