Háskólablaðið auglýsir

Stjórn Lögréttu barst eftirfarandi tilkynning frá Háskólablaðinu:

 

Kæru HR-ingar!!

Ritstjórn Háskólablaðsins auglýsir eftir tveimur metnaðarfullum aðilum sem hafa áhuga á að standa með okkur að útgáfu Háskólablaðsins 2011.

Okkur vantar í fyrsta lagi metnaðarfullan og framtakssaman uppsetjara til að setja upp blaðið sem mun koma út í byrjun árs 2011.

Í öðru lagi leitum við að færum og hugmyndaríkum ljósmyndara sem er tilbúinn til að leggja okkur lið.

Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi brennandi áhuga á uppsetningu og/eða ljósmyndun.

Þetta er frábært tækifæri til að afla sér umfangsmikillar reynslu á viðkomandi sviði auk þess sem slík reynsla kemur sér vel fyrir ferilskrána!

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda póst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 9. maí.

Bestu kveðjur,

Ritstjórn Háskólablaðsins 2010-2011

Niðurstaða aukakosninga

Niðurstöður aukakosninga Lögréttu árið 2010:

Framkvæmdaráð lögfræðiþjónustu Lögréttu

Listi Furu Sóleyjar Hjálmarsdóttur hlaut 82% greiddra atkvæða
Auðir og ógildir voru 18%


Fréttaritari Lögréttu

Benedikta G. Kristjánsdóttir hlaut 83% greiddra atkvæða
Auðir og ógildir voru 17%


Lög Lögréttu - 26. gr.
Ef frambjóðandi er einn í framboði þarf hann 2/3 hluta greiddra atkvæða til að hljóta kosningu. Ef ekki hefur hlotist lögleg kosning í öll embætti, skal nýkjörin stjórn auglýsa eftir framboðum í laus embætti ekki síðar en 10 dögum eftir aðalfund. Skal að öðru leyti fara um framkvæmd kosninganna eftir 26. gr. Hafi, eftir þessa síðari umferð kosninga, ekki hlotist lögleg kosning í öll embætti, skal nýkjörin stjórn skipa í laus embætti úr hópi félagsmanna sem hafa kjörgengi.

Báðar hlutu þær rúmlega 2/3 hluta greiddra atkvæða.

Stjórn Lögréttu þakkar kjörstjórninni fyrir vel unnin störf og óskar Furu, Önnu og Benediktu til hamingju

 

Stjórn Lögréttu og Kjörstjórn

Framboð

Eftirfarandi framboð bárust kjörstjórn Lögréttu:


Framboð í framkvæmdastjórn lögfræðiþjónustu Lögréttu

framkvaemdastjorn

Við sækjumst eftir kjöri í framkvæmdaráð lögfræðiþjónustu Lögréttu fyrir næstkomandi skólaár. Markmið okkar er að halda áfram að efla lögfræðiþjónustuna, gera hana sýnilegri og aðgengilegri fyrir einstaklinga og sprotafyrirtæki og koma á samstarfi við Hugmyndahús. Einnig viljum við koma af stað öflugri réttindafræðslu fyrir ungt fólk m.a. á sviði vinnumarkaðsréttar. Við lítum á lögfræðiþjónustuna sem gott tækifæri til að nýta lögfræðiþekkingu okkar til að leggja gott af mörkum.

Framkvæmdastjóri: Fura Sóley Hjálmarsdóttir 3. árs nemi

Meðstjórnandi: Anna Kristín Kristjánsdóttir 3. árs nemi

Fura Sóley Hjálmarsdóttir

Ég heiti Fura Sóley Hjálmarsdóttir, fædd 1987. Ég mun útskrifast með BA gráðu við lagadeild HR í vor, og í framhaldi af því fara í meistaranám við HR næsta haust. Ég starfaði sem sjálfboðaliði í lögfræðiþjónustunni sl. starfsár, bæði við opna ráðgjöf og á skattadeginum. Sem sjálfboðaliði öðlaðist ég reynslu og yfirsýn á starfi þjónustunnar. Ég starfaði sem aðstoðamaður framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Kaupþings banka sumrin 2003-2008 og mun nú í sumar starfa í innheimtudeild lögfræðisviðs Arions banka

Anna Kristín Kristjánsdóttir

Ég heiti Anna Kristín Kristjánsdóttir, fædd 1982. Ég mun útskrifast með BA-gráðu við lagadeild HR í vor, og í framhaldi af því fara í meistaranám við HR næsta haust. Eftir útskrift úr framhaldsskóla starfaði ég sem þjónusturáðgjafi hjá Kaupþingi banka á Selfossi og hef svo á starfað á lögfræðisviði Landsbankans sumarið 2008 og á viðskiptabankasviði Landsbankans sumarið 2009 og nú í sumar.


Framboð í fréttaritara Lögréttu

dikta

Ég, Benedikta Gabríella Kristjánsdóttir, ætla að gefa kost á mér í embætti Fréttaritara Lögréttu.
Að mínu mati hefur þetta embætti ekki verið nægilega áberandi á síðustu misserum og ég tel að það mætti nýta þessa stöðu mun betur en nú þegar er gert. Ef ég næði kjöri myndi ég leggja mikið upp úr því að flytja ekki einungis fréttir af vísindaferðum heldur einnig reglulegar fréttir af því sem stjórnin er að gera og hvaða hagsmunum nemenda er verið að vinna í. Ég myndi þó að sjálfsögðu vera áberandi í vísindaferðunum líka með myndavélina á lofti, því það er ekki síður mikilvægt. Ég tel mig hafa alla burði til að sinna þessu embætti vel, þar sem ég hef mikinn áhuga á starfi Lögréttu og hef verið dugleg að stunda félagslífið síðan ég byrjaði í skólanum. Einnig hef ég mikinn áhuga á tölvum og öllu sem þeim tengist, sem ætti að vera hjálplegt í baráttunni við heimasíðu félagsins.Það er minn metnaður að taka þetta embætti upp á nýtt stig, þar sem nemendur geti fengið reglulegar fréttir af störfum stjórnarinnar og málefnum laganema.

Ég óska eftir þínum stuðning, kæri laganemi.
Benedikta Gabríella Kristjánsdóttir.

Kosningar verða á myschool dagana 27. apríl til 30. apríl.

Stjórnin og kjörstjórn Lögréttu

Félag atvinnurekenda óskar eftir laganemum

Lögrétta fékk beiðni um að koma eftirfarandi á framfæri:

Félag atvinnurekenda óskar eftir að ráða laganema í stöðu fulltrúa í sumar. Viðkomandi mun vinna að úrlausn lögfræðilegra álitamála, vinna umsagnir og álitsgerðir auk þess að aðstoða aðra lögfræðinga félagsins. Fyrir réttan aðila er hér um að ræða mikla áskorun og góða reynslu.

Æskilegt er að viðkomandi hafi í það minnsta lokið grunnnámi (BA) í lögfræði og náð góðum námsárangri. Þá verður viðkomandi að hafa góða samstarfshæfileika, metnað og brennandi áhuga á lögfræði og viðskiptum.

Áhugasamir eru beðnir um að senda umsóknir sínar, ferilskrá og einkunnir á pall (at) atvinnurekendur.is

Tekið verður við umsóknum til 28. apríl n.k.

Kv. Stjórnin