Próflokadjamm

 

Jæja kæru laganemar, nú fer að líða að próflokum hjá okkur og þá er kominn tími til að huga að PRÓFLOKADJAMMI !

Próflokadjammið verður haldið á Zimsen, Hafnarstræti 18, 101 Reykjavík, laugardaginn 24.apríl. Hátíðin hefst klukkan 20:30íslenskum staðartíma.

Það verður FRÍR BJÓR í boði fyrir þyrsta laganema og ÓVÆNTUR GLAÐNINGUR við komu!

Um kvöldið verður farið í keppni milli áranna þar sem verðlaun verða í boði !

Seint og síðar meir þegar þyrstustu laganemarnir vilja sækja í meira og verða á halanum eða út úr kortinu eins og sumir segja þá verður bjórinn seldur á gjafverði, þ.e. litlar 390 íslenskar krónur. Á barnum verða svo fleiri Góð og Gómsæt tilboð. ATH gegn framvísun félagaskírteinis.

Merkið því við laugardagskvöldið 24.apríl í dagatalinu ykkar og takið kvöldið frá - Þetta verður ÓGLEYMANLEGT !

kv. Skemmtinefndin

Tilboð hjá KFC

100878_A3poster

Aukakosningar

Framboðsfrestur er hafinn í aukakosningar Lögréttu 2010.

Tekið er við framboðum í eftirfarandi embætti:

Fréttaritari Lögréttu
Fréttaritari sér um að flytja fréttir af starfi Lögréttu eða öðrum málefnum sem tengjast félaginu. Útgáfa fréttaritara birtist laganemum á pappírs- ellegar rafrænu formi.

Fulltrúar í framkvæmdaráði Lögfræðiþjónustu Lögréttu
Tveir aðilar í framkvæmdaráð Lögfræðiþjónustu Lögréttu. Hér er um listakosningu að ræða og skal annar aðilinn koma fram sem framkvæmdastjóri Lögfræðiþjónustunnar en hinn sem meðstjórnandi í framkvæmdaráði. Tilgreint skal á framboðslista hvor býður sig fram í embætti framkvæmdastjóra og hvor býður sig fram í embætti meðstjórnanda.

Framboðsfrestur rennur út mánudaginn 26. apríl 2010 klukkan 16:00.

Frekari upplýsingar gefur kjörstjórn, kjorstjorn (at) logretta.is

Stjórnin

Aukakosningum frestað



Aukakosningum í embætti Lögréttu sbr. 26. gr. laga félagsins, verður frestað um óákveðinn tíma vegna Gerðardóms sem nú hefur verið skipaður.

Gerðardómur sbr. 50. gr. laganna var skipaður vegna deilna um túlkun 46. gr. laganna um kjörgengi í framkvæmdaráð lögfræðiþjónustu Lögréttu.

Aukakosningar verða eins fljótt og Gerðardómur hefur skilað niðurstöðu. Einnig verður þá kosið í embætti fréttaritara Lögréttu.

Stjórn Lögréttu vonar að páskarnir hafi verið góðir, og óskar ykkur góðs gengis í komandi prófum.

Stjórn Lögréttu