Knattspyrnumót Lögréttu
| 20. Mars 2010

Taka ber fram að spilað verður innanhúss á litlum velli (2/3).
ATH: Heimilt er að hafa 2 leikmenn í hverju liði sem eru ekki félagsmenn - verða þó að vera nemendur í lagadeild á viðkomandi ári.
Næstkomandi miðvikudag þann 24. mars verður haldið hið árlega Knattspyrnumót Lögréttu í Vodafone Höllinni, leikar hefjast kl. 12:30 og keppt verður bæði í kvenna og karla riðlum.
Reglur mótsins eru einfaldar:
- Leikmenn skulu vera félagsmenn Lögréttu
- Heimilt er að koma með tvö lið frá hverju ári en í hverju liði skulu einungis vera leikmenn af sama ári í lögfræðinni.
- Leikreglur verða með hefðbundnu sniði og kynntar á mótsstað.
Vegleg verðlaun í boði, mikil heiður og síðast en ekki síst glæsilegur bikar.
Hverjir verða Lögréttu meistarar í knattspyrnu 2010?
Við óskum eftir skráningum í mótið!
Skráningar skulu berast á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. með fyrirsögninni „Knattspyrnumót Lögréttu 2010“, tölvupósturinn skal innihalda upplýsingar um nafn liðsins, hvaða ári það tilheyrir og að lágmarki fimm leikmenn þess. Taka þarf fram hver sé fyrirliði liðsins og símanúmer.







