Kokteill í LEX
| 16. Mars 2010


Síðasti kokteill vetrarins!
Kokteill meistaranema í LEX
Hvenær? Föstudaginn 19. mars kl 17.00
Hvar? Borgartún 26, 105 Reykjavík.
Hve margir? Einungis 40! (Meistaranemar)
Að ferðinni lokinni förum við með Orator, félagi laganema við HÍ á Apótekið og skemmtum okkur saman og förum jafnvel í létta leiki. Frábær tilboð á barnum, gegn framvísun félagaskírteinis!
Við hvetjum alla þá sem ekki komast í ferðirnar að hitta okkur á Apótekinu að ferðunum loknum.
LEX er öflug alhliða lögmannsstofa með um 35 lögmenn í sinni þjónustu og á sjötta tug starfsmanna alls.
LEX veitir þjónustu á öllum sviðum lögfræðinnar hér heima og erlendis. Meðal viðskiptavina stofunnar eru íslensk og erlend fyrirtæki og bankar, opinberar stofnanir, sveitarfélög og einstaklingar.
Lögmenn stofunnar hafa sérhæft sig á einstökum sviðum lögfræðinnar og búa yfir mikilli þekkingu og reynslu á sínum sérsviðum. LEX hefur verið í forystu hér á landi varðandi sérhæfingu í lögmannsþjónustu með stofnun sérstakra sviða innan stofunnar. Upphaflega með sérstöku skattasviði og nú síðast á sviði auðlinda-, orku- og umhverfisréttar. LEX er meðlimur í Lawyers Associated Worldwide (LAW).
[Tekið af heimasíðu LEX – www.lex.is]
Skráning í LEX er hafin á innra netinu.







