Félagsgjöld Lögréttu 2010-2011
Skrifað af: Aldís Geirdal Sverrisdóttir
|
25. Ágúst 2010
Kæru laganemar
Nú ættu greiðsluseðlar fyrir félagsgjöld í Lögréttu skólaárið 2010-2011 að vera komnir inn á heimabankana ykkar (ath að þið fáið ekki seðil sendan heim í pósti)
Innifalið í félagsgjöldum Lögréttu er:
Nemendafélagsskírteini sem gildir sem afsláttakort í ýmsum verslunum, skemmtistöðum og matsölustöðum. Allar upplýsingar munu koma undir flipann ,,Afslættir" á heimasíðu félagsins, innan skamms. Við bendum sérstaklega á samning okkar við Hvítu perluna en þar fáum við 20% afslátt af öllu auk frábærra tilboða á föstudags- og laugardagskvöldum.
Humarhátíð Lögréttu verður haldin 5. nóvember á Stokkseyri. Þetta er atburður sem enginn má missa af og fá félagsmenn Lögréttu forgang í miðasölu.
Árshátíð Lögréttu, verður haldin eftir áramót. Síðastliðin tvö ár hefur verið haldin sameiginleg árshátíð með öllum deildum en í ár verður endurvakin sú mikla hefð að halda sér laganemaárshátíð. Allir þeir sem upplifðu eina slíka á sínum tíma vilja ekki missa af því og þeir sem ekki hafa upplifað slíkt geta ekki leyft sér að missa af henni í ár. Aðgangseyrir verður lægri fyrir greiðandi meðlimi, en að sjálfsögðu allir velkomnir!
Vísindaferðir í helstu fyrirtæki landsins. Stjórnin bendir sérstaklega á að þetta árið verða einnig margir kokteilar á lögmannsskrifstofur sem verður einungis fyrir lengra komna nemendur.
Atburðir SFHR, svo sem grímuballið, jólaballið og Ólympíuleikarnir.
Skemmtikvöld, golfmót, óvissuferð nýnema, málfundir og ræðunámskeið.
Síðast en ekki síst er áskrift að Tímariti Lögréttu innifalið, sem er gefið út 2-3 á ári. Áskriftin kostar 3980 kr á ári, svo það marg borgar sig að skrá sig í Lögréttu!
- allt þetta fyrir einungis 5990 kr ! (og meira að segja 4490kr ef þú ert í Arion banka, sjá neðar: )
Arion banki greiðir niður nemendafélagsgjöld um 1.500 kr. til háskólanema.
Til þess að eiga rétt á endurgreiðslu þarf nemandi að uppfylla eitt af eftirfarandi skilyrðum:
Vera með KORTIÐ + námsmannareikning
Vera í Vildarþjónustu bankans
Stofna til viðskipta sem gera hann að Vildarfélaga.
Stofna KORTIÐ og námsmannreikning.
Til að hægt sé að endurgreiða þurfa þjónusturáðgjafar í útibúi bankans að fá staðfestingu á að nemandi hafi greitt nemendafélagsgjald í formi kvittunar eða staðfestingar á greiddu félagsgjaldi. Staðfesting má vera útprentuð úr netbanka eða send á þjónusturáðgjafa í pósti.
Mikilvægt er að kvittun sé greinilega merkt viðeigandi nemendafélagi eða skóla.
Greitt verður inn á reikninginn í fyrstu viku október.
Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að gerast meðlimir Lögréttu!
Með kveðju
Stjórnin