Lögrétta sigraði Markaðsráð í keilu
Skrifað af: Vilmar Sævarsson
|
17. Október 2009
Á föstudaginn stóð nemendafélagið fyrir keilu þar sem Lögrétta og Markaðsráð mættust í harðvígri rimmu. Á endanum stóð Lögrétta uppi sem sigurvegari annað árið í röð og spurning er hvort þetta sé ekki hin rétta íþrótt laganema eftir vægast sagt slaka frammistöðu á síðustu ólympíuleikum.
Stigahæstu leikmenn mótsins voru þeir Böðvar, Jakob Björgvin og Guðjón Bjarni en þess má geta að tveir síðast nefndu eru meðlimir í nafnlausa keilufélaginu. Á mótinu varð einnig ljóst að Guðmundur Kári eða Mundi eins og hann er kallaður, er skotfastasti keiluspilari Lögréttu en hann náði að varpa kúlunni á ótrúlegum 35.4 km. km. hraða á kl.st. Ragnar Björgvinsson þótti með fallegasta stílbragðið en það samanstóð af hinni hefðbundnu sveiflu en jafnframt þar til gerðri stungu þar sem hann fylgdi kúlunni eftir án þess þó að það bæri tilskilinn árangur.
Myndir koma inn bráðlega.