Lögfræðiþjónusta Lögréttu 2010-2011

Ókeypis Lögfræðiþjónusta Lögréttu

Laganemar veita einstaklingum endurgjaldlausa lögfræðilega ráðgjöf í sumar.
Málin geta verið á hvaða sviði sem er, t.a.m. ef óvissa er um skattamál, réttindi á atvinnumarkaði, réttindi íbúa í fjöleignarhúsi, hjúskapar- eða erfðamálefni.
Tekið er á móti fyrirspurnum á netfangið lrthjonusta (at) ru.is

Free Legal Aid from Law Students at Reykjavík University

Law students at Reykjavík University offer free legal aid for all individuals.
Advice will be available on any legal issues, such as taxes, labour market rights, the rights of tentants, marriage and inheritance related matters.
Send questions at legalaid (at) ru.is

Framkvæmdastjóri Lögfræðiþjónustunnar er Fura Sóley Hjálmarsdóttir og meðstjórnendur eru Anna Kristín Kristjánsdóttir, Ásrún Eva Harðardóttir og Ljósbrá Logadóttir.

 

 

Um Lögfræðiþjónustu Lögréttu

Lögfræðiþjónusta Lögréttu var sett á stofn í mars 2007 í samstarfi við lagadeild Háskólans í Reykjavík og Alþjóðahús. Í upphafi var áhersla lögð á að veita innflytjendum og fólki af erlendum uppruna ókeypis lögfræðiaðstoð enda fór þeim ört fjölgandi hér á landi og var þörfin því til staðar. Í kjölfar þess að aðsókn innflytjenda í þjónustu lögfræðiþjónustunnar dróst saman, haustið 2008, var tekin sú ákvörðun að bjóða öllum, jafnt innflytjendum sem Íslendingum, upp á þjónustu Lögfræðiþjónustunnar. Lögfræðiþjónustan var upphaflega með aðstöðu í Alþjóðahúsi en frá og með áramótunum 2009/2010 hefur þjónustan verið með aðstöðu í Háskólanum í Reykjavík.

Hjá Lögfræðiþjónustu Lögréttu veita laganemar á 3.-5. ári endurgjaldslausa lögfræðilega ráðgjöf og öðlast með því dýrmæta reynslu. Þau mál sem Lögfræðiþjónustan hefur fengið til úrlausnar hafa verið á hinum ýmsu sviðum lögfræðinnar en þau algengustu varða, svo dæmi séu tekin, réttindi starfsmanna á atvinnumarkaði, réttindi íbúa fjöleignarhúsa, hjúskapar- og erfðamálefni og réttindi leigjenda íbúðarhúsnæðis. Ef vandamálið er þess eðlis að við getum ekki leyst það þá beinum við fólki áfram til viðeigandi aðila, svo sem lögreglu eða lögmanna.

Jafnframt því að vera með opið einu sinni í viku þá hefur Lögfræðiþjónustan veitt sértæka lögfræðilega ráðgjöf. Ber þar fyrst að nefna skattadaginn en þá getur fólk komið og fengið aðstoð við útfyllingu skattframtala, einnig var Lögfræðiþjónustan með viðburð í Hugmyndahúsi í athafnavikunni síðastliðið haust, þar sem veitt var ráðgjöf á sviði hugverkaréttinda. Þessir viðburðir hafa verið vel sóttir og mikil ánægja verið með ráðgjöfina.