Lögfræðistörf hjá Arion Banka

Arion banki hf. óskar eftir að ráða laganema í hlutastörf í lögfræðiráðgjöf og lögfræðiinnheimtu bankans í vor og/eða sumar. Um fleiri en eina ráðningu er að ræða, í 3-6 mánuði í senn.

Starf laganema mun felast í því að aðstoða starfsmenn lögfræði­ráðgjafar / lögfræðiinnheimtu bankans. Vinnu­tími er sveigjanlegur.

Æskilegt er að umsækjendur séu á 4. eða 5. ári laganáms­ins. Nauð­syn­legt er að um­sækjend­ur hafi tamið sér sjálfstæð og öguð vinnu­brögð.

Lögfræðisvið bankans skiptist í lögfræðiráðgjöf og lögfræðiinnheimtu. Starfsmenn lögfræðiráðgjafar bankans fást við ýmis verk­efni, s.s. lögfræðilega ráðgjöf við yfirstjórn og flest svið bankans, samn­inga­gerð, vinna við endurskipulagningu fyrirtækja og annars konar lögfræðileg verk­efni. Meðal verkefna starfsmanna lögfræðiinnheimtu er lögfræðileg innheimta krafna, gerð lána- og veðsamninga og málflutningur.

Meðal helstu rétt­ar­sviða sem á reynir eru félagaréttur, kröfu­­­réttur, samningaréttur, verðbréfamarkaðsréttur og réttarfar.

Áhugasamir sæki um starfið á vefsíðu bankans, www.arionbanki.is og sendi með  ferilskrá og yfirlit yfir einkunnir.

Nánari upplýsingar veitir Ásrún Arnþórsdóttir á starfsmannasviði, sími 444 6395, netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar nk.