Málflutningsnámskeið

Málfundafélag Lögréttu mun standa fyrir málflutningsnámskeiði miðvikudaginn 24. febrúar nk. kl. 20:00, í stofu 231b, og mun það standa í rúma klukkustund.

Í ár mun Helgi Jóhannesson hrl. og einn af meðeigendum Lex lögmannsstofu mæta til leiks. Helgi hefur gífurlega mikla reynslu af málflutningi og mun hann miðla visku sinni til nemenda.

Á námskeiðinu verður gert ráð fyrir umræðum og fyrirspurnum til Helga að lokinni framsögu hans.

Vonumst til að sjá sem flesta!

Málfundafélagið