Slitastjórn Kaupþings auglýsir eftir laganemum
| 19. Júní 2009
Slitastjórn Kaupþings banka hf. auglýsir eftir laganemum til starfa við verkefni undir handleiðslu slitastjórnar og lögfræðinga slitastjórnar. Í slitastjórn bankans sitja Davíð B. Gíslason, hdl. (Gjaldheimtunni), Feldís L. Óskarsdóttir, hdl. (Borgarlögmönnum) og Ólafur Garðarsson, hrl. (Lögfræðistofu Reykjavíkur). Óskað er eftir laganemum í meistaranámi sem lokið hafa BA-gráðu í lögfræði. Um er að ræða störf í sumar og jafnframt með skóla í vetur, eftir því sem samkomulag næst um hverju sinni. Umsóknir (ferilskrá, einkunnir og meðmæli) skal senda á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Geta skal sérstaklega um færni í erlendum tungumálum (einkum ensku og/eða þýsku) í umsókninni.





