Málfundafélag

 

Málfundafélag Lögréttu var stofnað á útmánuðum 2004 og er tilgangur félagsins að stofna til umræðu um lögfræðileg málefni og að þjálfa félaga sína til lögfræðilegra viðfangsefna, rökfimi og mælskulistar skv. 3. og 5. tl. 3. gr. laga Lögréttu.

Félagið stendur reglulega að opnum málfundum þar sem gestkomandi ræðumenn skiptast á skoðunum um ákveðið og fyrirliggjandi umræðuefni auk þess sem félagsmönnum sem öðrum góðum gestum gefst kostur á að kasta fram spurningum til framsögumanna. Þá stendur Málfundafélagið fyrir ræðunámskeiðum í samstarfi við Junior Chambers á Íslandi. Á hverju ári sér félagið um hina árlegu ferð til Þingvalla á slóðir Lögréttu hinnar fornu og hefur Sigurður Líndal lagaprofessor séð um að fræða nemendur í ferðinni.

Frekari upplýsinga um Málfundafélagið er hægt að afla með því að senda fyrirspurn á malfundafelag at logretta punktur is.

Formaður Málfundafélagsins er Haukur Gunnarsson, stud.jur. haukur at logretta punktur is.