Tímarit Lögréttu - 1. tbl. 2005
| 09. Ágúst 2009
Fyrsta hefti 2. árg. Tímarits Lögréttu kom út í mars 2005. Innhélt það 5 greinar. Ritstjóri heftisins var Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, laganemi."Hvers vegna eruð þið alltaf að þessu þrasi?"
Eftir Skúla Magnússon
Í grein eftir Skúla Magnússon, héraðsdómara, er leitast við að skilgreina fræðigreinina lögfræði og stöðu hennar meðal annrra fræðigreina. Einnig er fjallað um lögfræðilegan ágreining og aðferðir við að komast að niðurstöðu um slíkan ágreining. Hér er um ritrýnda fræðigrein að ræða.
Kröfugerð í málum gegn ríkinu og stjórnskipuleg valdmörk dómstóla.
Eftir Róbert R. Spanó
Grein Róberts R. Spanó, dósents, fjallar um kröfugerð í málum gegn ríkinu og stjórnskipuleg valdmörk dómstóla. Hann leitast við að svara þeirri spurningu hvenær og við hvaða aðstæður kröfugerð borgara á hendur stjórnvöldum teljist þess eðlis að viðurkenning kröfunnar af hálfu dómstóla feli í sér að dómstóll gangi inn á verksvið framkvæmdarvaldsins. Hér er um ritrýnda fræðigrein að ræða.
Félagsform íslensku sparisjóðanna.
Eftir Jóhannes Karl Sveinsson
Í þessari grein sem er eftir Jóhannes Karl Sveinsson, hrl, er fjallað um rekstrarform sparisjóðanna og er það borið saman við sjálfseignarstofnanir og hlutafélög. Um er að ræða viðfangsefni sem ekki hefur áður verið fjallað um á fræðilegan hátt. Rakin er þróun löggjafar um sparisjóði hér á landi og hún borin saman við löggjöf í nokkrum löndum. Þá er fjallað á áhugaverðan hátt um ágreining um eignarhald að Sparisjóði Reykjavíkur sem nýlega var í sviðsljósinu. Hér er um ritrýnda fræðigrein að ræða.
Hlutverk og ábyrgð byggingastjóra.
Eftir Erlend Gíslason
Grein þessi er eftir Erlend Gíslason, hrl, og fjallar um hlutverk og ábyrgð byggingastjóra og er þar flóknu efni gerð ítarleg skil á greinargóðan hátt. Þess má geta að lítið hefur verið ritað um þetta efni á íslensku áður. Hér er um ritrýnda fræðigrein að ræða.
Yfirtökuskylda.
Eftir Jóhannes Sigurðsson
Hér fjallar Jóhannes Sigurðsson, prófessor við Lagadeild Háskólans í Reykjavík, um það hvenær yfirtökuskylda stofnast í hlutafélögum og hvort æskilegt sé að auka kröfurnar í þeim efnum. Spurningunni varðandi það hvers lags tengsl leiði til yfirtökuskyldu er varpað upp og leitað svara, einkum með hliðsjón af öðrum lögum og tilskipunum ESB. Hér er um ritrýnda fræðigrein að ræða.





