Tímarit Lögréttu - 2. tbl. 2005
| 09. Ágúst 2009
Annað hefti 2. árg. Tímarits Lögréttu kom út október 2005. Innihélt það 3 greinar. Ritstjóri heftisins var Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, laganemi.Skaðabótareglur laga um lausafjárkaup.
Eftir Þorgeir Örlygsson
Grein Þorgeirs Örlygssonar, dómara við EFTA-dómstólinn í Brussel, fjallar um skaðabótareglur laga um lausafjárkaup. Í greininni er þeim breytingum lýst sem urðu á íslenskum rétti við setningu nýrra laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 og varpar ljósi á eðli og uppbyggingu skaðabótareglna lausafjárkaupalaga og tengsl reglnanna við aðrar skaðabótareglur á sviði kauparéttar. Hér er um ritrýnda fræðigrein að ræða.
Dómarastarfið og meðferð dómsvaldsins.
Eftir Sigríði Ingvarsdóttur
Grein Sigríðar Ingvarsdóttur, dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, fjallar um skyldur dómarans og hlutverk dómsvaldsins í réttarríkinu. Grein Sigríðar varpar ljósi á þankagang dómara og hvernig þeir líta á og rækja hlutverk sitt.
Vinnuslys, slysatrygging sjómanna, seinni hluti.
Eftir Dr. Guðmund Sigurðsson
Í grein Dr. Guðmundur Sigurðsson, dósent við Háskólann í Reykjavík, er um er að ræða framhald af grein hans úr fyrsta hefti, fyrsta árgangs Tímarits Lögréttu, um vinnuslys og slysatryggingu sjómanna. Fjallar greinin um álitaefni tengd gildissviði hinnar nýju slysatryggingar sjómanna, nánar tiltekið bótarétt til tjónþola eða aðstandenda þeirra, hver eigi bótarétt og hvert sé umfang bótaréttarins. Hér er um ritrýnda fræðigrein að ræða.





